eru auðvitað
Steinunn og
Stefán. Innilega til hamingju með daginn!!! Ég vildi svooo óska að ég hefði getað verið með. Núna stendur væntanlega hin fínasta veisla yfir í Elliðaárdalnum þar sem allir skemmta sér glimrandi vel. Treysti svo á góðar frásagnir og myndir helst sem fyrst og svo frá fyrstu hendi um jólin.
Mér hins vegar hundleiðist hér heima. Hitinn er nú e-ð að lækka en samt ekki nóg og mér er drulluillt í hálsinum (ytra sem innra) plús allskyns viðbót. Ég sé á netinu að það hefa verið sérstaklega áhugaverðir fyrirlestrar og umræður í dag í skólanum. En ég fæ allavega lánaðar glósur hjá aðalglósukonunni svo ég fæ væntanega veður af flestu sem farið hefur fram. Frekar ömurlegt að þurfa að sleppa heilli svona helgi.
Nú er Valdimar farin í partý og við mæðgin heima. Mjög rólegt. Hann fær að horfa á litlu hafmeyjuna og svo er það bara í háttinn.
Annars er mjög einföld heimsmynd hjá svona gutta: "HC Andersen stjórnar sögunum og Mikki Mús stjórnar Disneyinu".
Posted at 07:40 pm by frujohanna
 |  |  |
Dagbjört September 29, 2007 11:27 PM PDT
Gott að heyra að þú virðist vera e-ð að koma til. Ómögulegt að hafa þig veika svona lengi. En um að gera að fara vel með sig svo að líkaminn nái að vinna á þessu og þú fáir nú enga ógeðsbakteríusýkingu ofan í þetta allt saman - margar bakteríur sem væru alveg til, trúðu mér :)
Sniðug heimsmynd, bara spurning hver stjórnar öllu hinu? |
 |

 |  |  |
Jóhanna September 30, 2007 12:56 AM PDT
Hvaða hinu;)
Nýjustu mælingar sýna ekki svo góða bötnun. Spurning um að fara að tékka á lækni. |
 |

 |  |  |
Dagbjört September 30, 2007 03:38 AM PDT
Nú life, universe and everything :)
Já, ekkert vera að hika við að tala við lækni. Þeir virðast að minnsta kosti skilja hvað þú segir, annað en Valdimar... En ekki heldur gleyma að það er ekkert óeðlilegt að vera lengi veik, það er bara afsprengi hraðans sem kominn er í þjóðfélagið að halda að veikindi séu alltaf óeðlileg ef þau vara lengur en örfáa daga. Speki dagsins í boði Karls G. Kristinssonar. |
 |

 |  |  |
NameSalný September 30, 2007 03:14 PM PDT
Vona að þér batni fljótlega... skelltu þér á C-vítamín kúr, paratabs, hóstasaft, hálsmola og nezeril og þá ertu orðin ballfær... og ég tala af persónulegri reynslu.. kv. salný |
 |

 |  |  |
Steinunn Þóra September 30, 2007 06:09 PM PDT
Takk fyrir kveðjuna. Þetta var í alla staði frábær dagur. Vonandi fer þér svo að batna. |
 |

 |  |  |
Helga Dröfn October 1, 2007 12:35 AM PDT
Batnaðarkveðjur og ég er sammála fröken læknanema. Tíminn vinnur með þér - leyfðu líkamanum að vinna á þessum djöflum. Þú ert sterkari en flensan :) |
 |