Add HTML here.


<< October 2007 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05 06
07 08 09 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Monday, October 29, 2007
Trúður

Það er gott að fólk tekur að sér svona þjóðþrifaverkefni. Mæli með að fólk setjist við sjónvarpið næsta fimmtudag og horfi á Trúð.

Meðan ég var úti var sko ekki setið auðum höndum hér heima. HG var búin að læra að hjóla þegar ég kom heim og vill helst fara allra sinna ferða á hjólinu sínu núna. Honum hefur meira að segja farið fram síðan ég kom og er farin að nota fótbremsuna soldið í stað þess að setja fæturna niður. Það tekur nú samt dágóðan tíma fyrir hann að hjóla t.d. í leikskólann, svona 20-30 mínútur, enda ná dekkin varla 12 tommu stærð. Svo er hann alveg uppgefinn greyið, sveittur og þreyttur í fótunum. En þetta vill hann. Held að við séum ekkert að kaupa stærra hjól alveg strax.

Það er komið 90% vetrarveður hérna. Vantar bara snjóinn - sem ég sakna reyndar alls ekki. En það er kalt, rok og rigning. Og laufblöð út um allt í hrúgum. Greinilega e-r niðurskurður hjá bænum þetta árið. Þeir eru að minnsta kosti ekki jafn duglegir að hreinsa þau upp núna og í fyrra.

Á miðvikudaginn koma mamma og pabbi í heimsókn í viku. Það verður notalegt að hafa þau. Vill svo skemmtilega til að það er akkurat ömmu- og afadagur í leikskólanum á föstudaginn. Ætli við höldum svo ekki svona smá upp á afmælið hans á sunnudaginn. Svo er Dagbjört líka væntanleg og svo ætlar Lisbeth að kíkja í heimsókn með krakkana daginn fyrir afmælið hans HG.

Posted at 11:27 am by frujohanna

auður
October 29, 2007   03:10 PM PDT
 
hæ.. bara að kíkja við.. ótrúlega langt síðan ég hef gert það.. geri mest lítið annað en að vinna í húsinu okkar.
Búin að blogga smá og setja inn myndir! EN bara smá.. en það er alltaf byrjunin.
Knús til ykkar...
kv auður
NameSalný
October 29, 2007   09:04 PM PDT
 
hmm.. spennt að sjá þessa þætti.. vona bara að þeir séu ekki á sama tíma og House sem er hinn þátturinn sem ég fylgist með í sjónvarpinu en sofna samt oftast yfir. Það verður gaman fyrir ykkur öll að fá ma, pa og da í heimsókn. Það er svo gott að vera í heimsókn hjá þér.. og nú sé ég bara fyrir mér allan góða matinn sem ég fékk hjá þér í sumar.. óforbetranlegt matargat.. Alla vegna hafið það gott, kannski verður afmælisgjöfin komin fyrir helgina.. mátulega í afmælið..
hildigunnur
October 29, 2007   11:49 PM PDT
 
Oh, það er svo gaman þegar þau læra þetta, þau eru svo stolt og glöð :D

Finnur á hins vegar svo stórt hjól að hann nær ekki niður með fæturna, en það er ekkert mál að taka hann með í hjólatúra, við getum alveg hjólað á þokkalegum hraða.
Dagbjört
October 30, 2007   12:30 AM PDT
 
Það er eitthvað svo krefjandi að vera sjónvarpsmanneskja þessa dagana. Og þessir Danir bara drita á okkur þáttum sem er bráðnauðsynlegt að horfa á. Aðeins að hægjast á hjartslættinum síðan ég horfði á Glæpinn í gær.
Steinunn Þóra
October 30, 2007   01:06 PM PDT
 
Mér sýnist við þurfa smá útsjónarsemi til að ná bæði Klovn og House. En við sem erum með digital Ísland getum náttúrulega bara horft á Klovn með klukkustundar seinkun. -Þetta +sjónvarp er uppáhalds uppfinningin mín í langan tíma.

Ég hef sem sagt aldrei haft mig í að horfa á dvd diskinn sem þú gafst mér. Danirnir bara tala of hratt, meira að segja fyrir mig. Vona að íslenskur texti hjálpi.



Maja
November 5, 2007   05:58 PM PST
 
Ég var að googla klovn og lenti hér inn :) Takk fyrir að auglýsa þættina og endilega fylgstu með þeim á rúv :)
yourshop.cc
December 4, 2008   09:47 AM PST
 
http://www.watchesforsale.us
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry