Nennið er í lágmarki. Smá öppdeit þó.
Erum búin að vera ein í koti síðan á þriðjudaginn. Það tekur svo enda á morgun þegar Dagbjört kemur. Það var óskaplega notalegt að hafa mömmu og pabba. Þau dekra alveg við okkur og við erum frekar lélegir gestgjafar þegar þau eru í heimsókn. Svo var líka skólahelgi hjá mér þannig að þau voru í því að passa og svoleiðis.
Við héldum pínkulítið afmæli síðasta sunnudag fyrst þau voru og buðum Þóreyju og co í mat. Næsta mánudag verður það svo leikskólinn. Það verður fróðlegt að sjá hvernig það tekst til. Þau verða hér milli 10 og 1, leika og fá e-ð gott að borða. Seinni partinn förum við svo með afmælisbarnið í Build A Bear þar sem hann fær að rasa aðeins út. Það mun eflaust stórsjá á buddunni eftir þá heimsókn.
Það hefur verið fjárfest í kuldaskóm á barnið. Fjárfest já, þeir kostuðu 650 DKK sem mér finnst ansi mikið fyrir skótau á tæplega fimm ára. Og þeir eru númer 30! Ég nota skó nr. 36-37. Ekki svo mikill munur miðað við að ég er 25 árum eldri.
Ég kíkti á
síðuna hans Hlyns í gær og ég verð að segja að ég er bara ánægð með lagið hans. Fyrsta lagið lofar allavega góðu. Ég fékk gæsahúð - ekki aulahroll! Endilega kíkið á hann.
Og ekki gleyma að horfa á Klovn í kvöld kl. hálf tíu. Vorkenni ykkur sko ekkert, með texta og allt. Hefði alveg verið til í að sjá þættina textaða þegar við vorum frekar ný hérna og áttum frekar erfitt með að greina orðaskil (snilldin flæddi nú samt í gegn). Það hefur nú lagast heilmikið. Sáum það fyrir ca mánuði þegar var viðtal við Bjørn Lomborg og við skildum allt sem fram fór. Okkur hefur sem sagt e-ð farið fram. Meira segja það að tala í síma er ekki eins slæmt eins og það var - en samt það versta.