Add HTML here.


<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Thursday, September 27, 2007
Veik

Frekar óbærilegir dagar í dag og í gær. Ég er búin að vera veik og með hita. Held ég hafi bara ekki orðið veik í eitt og hálft til tvö ár. Hrollur og sviti til skiptis, mjög bólgin háls, höfuðverkur og magaverkir. Mjög skemmtilegt sem sagt. Það versta við það að vera veikur er að það er eiginlega bara í boði að vera veikur fram til ca þrjú/fjögur á daginn. Þá þarf að sækja á leikskóla, elda mat o.s.frv. þegar mann langar bara mest að liggja í eymdinni uppi í rúmi. HG er að fara í fyrramálið með leikskólanum á bangsaspítala eldsnemma þannig að það var auðvelt að fá hann til að sofna snemma og ég því búin að liggja í þrjá tíma í rúminu og dotta í svona eina og eina mínútu. Ég vona bara að þetta fari að taka enda svo ég verði hress í skólann á laugardaginn. Það væri frekar glatað að þurfa að sleppa skólanum.

Það var alls ekki hægt að tala hann til í gær varðandi fimleikana. Hann var bara alveg ákveðinn í því að hann hefði ekkert þangað að gera. Þannig að við erum bara búin að slaufa þeim.

Já og við erum búin að panta far um jólin, 17. des. - 2. jan. Að þessu sinni verður Iceland Express gefið sjens eftir að ég varð ofur pirruð á Icelandair síðast. Svo var líka mun meiri verðmunur núna en áður þegar ég hef verið að panta. Fer reynar soldið í taugarnar á mér að þurfa að borga 1000 fyrir hvert pantað sæti í vélinni, sem sagt 6000 kall bara í það. Mér finnst það svona full mikið peningaplokk fyrir sjálfsagðan hlut.


Posted at 11:42 pm by frujohanna
Comments (4)  

Tuesday, September 25, 2007
Kóngulær og mý

Það sést greinilega hér á heimilinu að það er langt síðan Dagbjört hefur komið í heimsókn því hér vaða kóngulær uppi sem aldrei fyrr. Ég er nú ekkert mjög viðkvæm fyrir þeim og finnst þær gera heilmikið gagn í að losa okkur við minni óvelkomnari gesti. En ég er minna hrifin af þeim svona alveg við höfuðgaflinn í rúminu og gerist svo djörf að fjarlægja þær. Það sem fer þó meira í taugarnar á mér er míið sem er að verða ansi aðgangshart um þessar mundir. Þær létu okkur alveg í friði í fyrra en hafa síðustu vikur verið að læða sér inn um gluggarifur og hafa stungið okkur nokkrum sinnum til skiptis. Við skulum bara segja að ég er ekki ein af þeim sem geri ekki flugu mein.

Við mæðgin fórum í dag til Þóreyjar í þar sem ung dama varð þriggja ára. Hún var mjög upptekin með systur sinni við að sinna nýrri dúkku frá foreldrum sínum. Mér sýndist vera mun meira mál að sinna þessari dúkku heldur en bara venjulegu ungabarni.

Önnur fimleikatilraun verður gerð á morgun. Þori ekki að vera bjartsýn (enda óþolandi svartsýnismanneskja að eðlisfari).


Posted at 11:42 pm by frujohanna
Comments (6)  

Sunday, September 23, 2007
Eller hur

Mjög rólegur og látlaus sunnudagur. Valdimar var í fríi og við vorum mjög sein af stað. Fórum svo á leikvöllinn og í langan hjólaæfingatúr. Það gekk bara vel svona miðað við að þetta er hjólaæfing nr. 2 og það með tveggja vikna millibili. Hann er svona að ná jafnvæginu en er ekki alveg að ná því að maður þarf að horfa áfram þegar maður er að hjóla, sérstaklega þegar maður er að læra að hjóla. Það er bara svo margt spennandi í umhverfinu. Svo nær hann að hjóla smá spöl sjálfur en þegar hann uppgötvar að við erum ekkert að styðja hann hættir hann að hjóla. En ég hef fulla trú á því að hann nái þessu innan tíðar, svo lengi sem við verðum dugleg að fara með honum út að æfa.

Nú er Forbrydelsen að byrja aftur í kvöld. Þrátt fyrir að við séum frekar þreytt bæði tvö ætla ég nú samt að þræla okkur í gegnum þáttinn núna, ég bara get ekki beðið, þetta eru svo miklir snilldarþættir og enduðu mjög spennandi í vor.

Annars er norska idolið alveg að slá í gegn á heimilinu núna. Þetta er allt saman mun fyndnara á norsku. Óheppilegt að Olla var fjarri góðu gamni, að rolast á Íslandi, þegar áheyrnarprufurnar fóru fram í Bergen. Þar hafa þeir misst kæmpe talent absolutt. Held að Valdimar sé líka að tjá sig um þetta, jafnvel með hljóð- og mynddæmum.


Posted at 09:45 pm by frujohanna
Comments (3)  

Saturday, September 22, 2007
Laugardagshangs

Ókey, ég er svona frekar mikill nöldrari þannig að Valdimar er nú þegar búin að skipta um síðu. Verst að það er enginn sem nöldrar í mér að skipta um kerfi.

Ég er fegin að ég hef skrópað svona oft á grænmetismarkaðnum á laugardögum og fórnað frekar miðvikudagsmorgnunum í þetta. Við mæðgin fórum þangað í dag rétt fyrir 12 og það var gjörsamlega pakkað og ekki hægt að ganga á milli eða komast að með góðu móti á básunum. Náði þó að krækja mér í þrjá bakka af hrikalega góðum dönskum jarðarberjum (veit nú ekki hvaða seinþroska jurt þau hafa komið af).

Á leiðinni þaðan var ég með ákveðnar hugmyndir um að koma við í búð og fara heim að borða. HG var hins vegar alveg innstilltur á að fara í HC Andersen húsið. Það var auðvitað látið eftir barninu. Þar var búið að breyta öllu frá því síðast. Ég á nú eftir að melta hvort mér finnst það e-ð gott, en það er auðvitað nauðsynlegt að skipta um þema endrum og eins svo skólakrakkarnir geri ekki það sama ár eftir ár. Við vorum orðin svöng þegar við komum heim kl. hálf fjögur.

Posted at 05:27 pm by frujohanna
Comments (2)  

Friday, September 21, 2007
Fótapirringur

Í dag á hann pabbi minn afmæli. Við systkynin gáfum honum DVD spilara. Ekki svo dulinn tilgangur var að þá getum við með góðri samvisku sent DVD myndir af athöfnum fjölskyldunnar, þó aðallega afkvæmisins. Mapa eru annars þau erfiðustu að gefa gjafir. Þau verða sér yfirleitt sjálf úti um þá hluti sem þau vantar - og það er nú kannski ekki svo margt sem fólk vantar sem á börn á þessum aldri.

Þetta var nú ekki nógu góður lestrardagur í dag. Ég var svo pirruð í fótunum að ég bara gat ekki setið kjurr. Og það er mikill ókostur á þessari lesstofu þar sem ískrar og brakar ríflega í  hverjum stól við minnstu hreyfingu. Hef bara ekki fengið svona hrottalegann pirring síðan ég misþyrmdi Tinnu á Beðið eftir Godot fyrir nokkrum árum. En þetta lagaðist nú að mestu þegar  ég var búin að  ganga í hinn endann á skólanum (sem er langt) í bóksöluna og  kaupa  bók og hefti sem voru loksins komin. Ég er bara ekki róleg fyrr en ég er búin að fá allar bækur og greinar annarinnar í hendur. Mín samúð til fólks með stöðugan fótapirring - Þið vitið hver þið eruð.

Posted at 11:21 pm by frujohanna
Comments (2)  

Thursday, September 20, 2007
Kaffe

(flámælt, ekki útlenska)

Fór aftur í skólann í dag að lesa eftir grænmetismarkaðs- og þvottadag í gær. Eftir sumarfríið er ég búin að pína í mig kaffi hvern lestrardag. Það virkaði svona glimrandi til að byrja með en nú er e-ð eins og líkaminn sé að venjast þessu og ég hef tekið smá dott. Verst hvað þetta kaffi þarna er mikill ruddi. Bláu könnu kaffi væri nú draumur

Þegar ég kom heim í dag voru þeir feðgar að hamast við að búa til pasta. Og brauðdeig var í hefun. Valdimar spurði HG hvort þetta yrði ekki besta spagettí sem hann hefði smakkað fyrst hann hefði búið það til sjálfur. "Nei það er hjá ömmu og afa". Vel soðið spagettí og hakk kann hann að meta.

Er alveg heilluð af þessari búð núna.

Posted at 09:58 pm by frujohanna
Comments (2)  

Wednesday, September 19, 2007
Sagan...

...segir að nágrannar okkar fyrir ofan okkur norðanmegin séu að flytja eftir 10 daga. Það er gaman. Fimleikatíminn í dag gekk illa, eða frekar gekk ekki. Barnið fór að hágráta í hálftíma meðan ég reyndi að telja í hann kjark. Hræðilegt. Ég veit bara ekki hvað ég á að gera. Mér finnst synd að hann detti út úr þessu bara út af litla músarhjartanu en ekki get ég pínt hann til að gera e-ð sem hann ekki vill gera og líður illa. Það er leiðinlegt.

Posted at 10:22 pm by frujohanna
Comments (3)  

Tuesday, September 18, 2007
18 líka alveg glimrandi

Í dag er hún Steinunn þrítug. Innilega til hamingju með daginn Steinunn. Reikna með að Stefán standi við gefin loforð um notalegt kvöld með humri eða blóðugu nauti. Það hljómar alls ekki illa.

Er alveg ægilega blogglöt núna. Það er ákaflega freistandi að gera það bara við svona hátíðleg tækifæri. Hver veit nema Valdimar verði duglegri. Ég er reyndar stórhneyksluð á að hann skuli sitja í mac tölvu og samviskulaus fá sér síðu hjá Mikrosoft. Lyktar af svikum.

Það er komin frekar mikil rútína þar sem ég fer í skólann meðan HG fer í leikskólann. Það gengur allt betur svona.

Á sunnudaginn fórum við í dýragarðinn og svo fer HG aftur þangað á morgun "það verður miklu skemmtilegra en með ykkur" sagði hann blákaldur í gærkvöldi. Á laugardaginn kíktum við HG í bæinn. Þá var þessi fína lúðrasveit DSB að spila Chess við gosbrunninn sem vinsælt er að sulla í. Alveg hreint glimrandi. Gamall fánaberi við hliðina og allt hvað eina.

Kólnaður hafragrautur tilbúinn til átu bíður mín.

Posted at 08:26 am by frujohanna
Comments (2)  

Friday, September 14, 2007
13 er góð tala!

Þó það sé rétt komið fram yfir miðnætti verð ég að óska Hrönn, elstu vinkonu minni, til hamingju með þrítugsafmælið. Þegar við vorum litlar passaði mamma henar mig fyrir hádegið og mamma passaði Hrönn eftir hádegið. Báðar voru þær kennarar í hlutastarfi með lítil börn sem sagt. Pabbi minn þreytist ekki á að segja frá því hvað Hrönn var alltaf dugleg að pissa í koppinn, sat þar eins og dæmd, meðan ég fékkst ekki til að staldra þar við nógu lengi.

Í kvöld var aðalfundur húsfélagsins hérna á kollegiinu þar sem farið var yfir fjárhagsáætlanir og svoleiðis skemmtilegt. Og ekki bara þau skemmtilegheit. Tvær tillögurnar mínar um breytingu á húsreglum voru samþykktar þannig að núna gilda e-r reglur um helgar og við þurfum ekki að þola partí fyrir utan svefnherbergisgluggana með reykjarsvælu frá brenndum dagblöðum í grillinu langt fram á nótt. Sem sagt góður fundur fyrir okkur fjölskylduna.

Einn einasti mánuður í Sýrland og Jórdaníu. Ég verð að segja að ég verð ekki minna flug- og ferðastressuð við fréttir af flugvélum að nauðlenda, sænskum teiknurum með lélegt skopskyn og herskáum Ísraelum varpandi sprengjum.

Posted at 12:23 am by frujohanna
Comments (4)  

Monday, September 10, 2007
Helgin

Þá er fyrirlestrahelgi liðin í skólanum. Í dag vorum við svo bara öll í fríi. HG og Valdimar fóru í dýragarðinn á lugardaginn meðan ég var í skólanum. Tvær vikur höfðu liðið frá síðustu ferð þannig að HG þótti alveg komin tími á aðra, þó fyrr hefði verið. Í dag fórum við svo til Kerteminde á sædýrasafnið sem þar er. Það er svona lítið og sætt og frekar fljótt farið í gegnum með ungan ólæsan og óþolinmóðan dreng. Held að þetta sé mjög fínt til að fara með bekki í fræðsluferðir. En þetta var samt mjög gaman. Hann var t.d. örugglega hálftíma að potast ofan í þar sem krabbar og krossfiskar voru.

Þar sem Valdimar er búin að vera í fríi núna höfum við borðað voða góðan mat. Svínahrygg í gær "sunnudagamat" og ótrúlega góðan steiktan karfa í kvöld. Mjög skemmtileg tilbreyting við tilbreytingasnauða matinn sem ég "kann" að elda og HG þarf að sætta sig við oftast.


Posted at 09:13 pm by frujohanna
Comments (5)  

Previous Page Next Page