Entry: Afrekaskrá Monday, October 01, 2007



Ég er orðin þrítug og hef komist gegnum öll þessi ár án þess að fá gat á hausinn eða hefta í fingurinn á mér. Á innan við ári hefur HG núna afrekað að fá tvö göt á hausinn og svo nú í dag að hefta í fingurinn á sér. Honum brá alveg hrikalega og reif heftið sjálfur úr (sem betur fer, ekki hefði ég gert það betur). Ég hef bara ekki heyrt hann gráta/öskra svona hrikalega. Mér skilst sem sagt að það sé vont að fá hefti í fingurinn. Paranojaða ég hringdi auðvitað í læknavaktina til að spyrja hvort e-ð væri gert í svona tilvikum (var þá með stífkrampasprautu svona í "baghovedet") en nei, bara plástur og kyssa á bágtið.

Ekki veit ég nú hver tengslin voru, en meðan á grátinum stóð og hann var ennþá að drepast vildi hann endilega horfa á Pétur Pan. Ekki gat ég neitað því á svona ögurstundu þannig að nú horfir hann á þá mynd, alltof seint á virkum degi. Þetta er auðvitað bara rugl.

Í dag er ég í fyrsta skipti alveg hitalaus. Var með örfáar kommur í gær en fannst það svo mikið stökk að ég ákvað að halda upp á það með að fara í afmæli til Sigrúnar Sólar og Marinós Mána hjá Þóreyju. Það hjálpaði nú mikið upp á andlega líðan eftir inniveruna undanfarið að hitta soldið fólk - skemmtilegt fólk. Ég var nú samt bara heima í dag því ég er ennþá með hjúp utanum höfuðið og að drepast í hálsinum. Leiðinlegt að vera með e-r slímræskingar á lesstofunni, svo ég spari verulega grafískar lýsingar.

Eftir tvær vikur verð ég að spóka mig í Damaskus. Þetta nálgast óðfluga. Ég er svona frekar ferðakvíðin (en samt beinlínis SPENNT að vita hver nú verður með mér í herbergi) að ég hlakka á þessari stundu mest til að koma heim aftur - ef ég kem heim aftur - tatatatammmm.

   10 comments

Ninos
October 1, 2007   11:35 PM PDT
 
Vonandi batnar ? fyrst. HG er hrikalega fyndinn...
Dagbjört
October 2, 2007   02:21 PM PDT
 
Þess má geta að börn hér á landi eru bólusett gegn stífkrampa. En ef að þú hefðir verið að skera þig og veifa svo puttanum í mold hefðirðu kannski átt að fá ,,booster". Svo er líka hægt að fá botulinum í sig úr jarðveginum, já já sei sei, það er allt til á Íslandi - margt að minnsta kosti.
Dagbjört
October 2, 2007   02:22 PM PDT
 
Og ég er líka með smá í maganum fyrir þína hönd fyrir þetta ferðalag. Þú getur þá sleppt því að vera með stóran hnút í maganum sjálf.
NameSalný
October 3, 2007   01:25 PM PDT
 
Með í maganum hvað... mér finnst þetta svo spennandi myndi helst vilja koma með þér... þetta verður hrikalega gaman, sjá FRAMANDI LÖND (já í fleirtölu) og menningu.. öfunda þig bara..
Dagbjört
October 3, 2007   02:44 PM PDT
 
Svona eru þessar ljósmæður alltaf hreint, alltaf svo TÖFF :)
Ættir líka meira að hlusta á þær heldur en litlu hræddu mig...
Name Salný
October 3, 2007   10:02 PM PDT
 
Já ég er mikill nagli.. þvílík hetja og ferðavön... það er ekkert að óttast þetta verður frábært ef þú bara leyfir
Jóhanna
October 4, 2007   12:28 AM PDT
 
Ég held ekki að þetta verði ekki frábært, þvert á móti. En ég er samt ferðakvíðin og finnst ekki notalegt að fljúga (sérstaklega ekki eftir fréttir síðustu vikna) og svo eru aðrir hlutir sem maður verður bara að treysta á Guð og lukkuna, jah, eða Allah og lukkuna, eða tilviljanir...:)
Steinunn Þóra
October 5, 2007   02:56 PM PDT
 
Það sem ekki drepur þig herðir þig. Og það er nú oft bara gaman að láta herða sig. Ég væri sko alveg til í að fara með þér.
Sigrún
October 11, 2007   09:09 PM PDT
 
Trúi ekki að læknir í Danmörku hafi sagt þér að kyssa á bágtið! Í Danmörku BLÆS fólk (puster) á óóið... :D
Jóhanna
October 12, 2007   10:35 AM PDT
 
Nei útfærslan á meðferðinni var nú bara mín túlkun:)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments