Entry: musik og prat Monday, October 08, 2007



Eins og vanalega er ekki mikið að frétta af þessum vígstöðvum. Valdimar er svo duglegur að ég nenni þessu varla. Þeir feðgar fóru í klippingu í dag til Tyrkjans í gamla bænum. Þeir eru voða fínir. Valdimar fékk e-ð nudd sem honum þótti e-ð of mikið af því góða en hann ætlar samt aftur því þetta er svo flinkur rakari. HG fékk svona mini hanakambsklippingu. Hann er alltaf svo glaður og montin þegar hann kemur úr klippingunni með greiðslu og allt. Svo mættu þeir heim með blómvönd handa mér og allt. Ægilega fínn. Langt síðan ég hef fengið blóm svona óforvarendis. En það er nú alltaf jafn yndislegt.

Við fórum í bíó í gær á Ratatouille. Mér fannst hún ferlega skemmtileg. HG fannst hún stundum leiðinleg og stundum skemmtileg. Þetta leiðinlega grunar mig að hafi verið þau örfáu "sorglegu" atriði í myndinni. Hann er ekkert fyrir e-a erfiðleika og leiðindi. Hann getur t.d. ekki horft á Litlu lirfuna ljótu því það er bara allt of sorgleg mynd. Hann er bara alveg með kökkinn í hálsinum þegar mínúta er liðin af þeirri mynd.

HG fór í sína fyrstu vinaheimsókn í síðustu viku og gekk það bara mjög vel. Ég var eiginlega sjálf allt of stressuð og bjóst við að hann myndi ekki höndla þetta þannig að ég kom eiginlega of snemma að sækja hann.

Forbrydelsen er alveg að gera mig brjálaða núna. Ég lifi mig svo inn í þetta að ég er bara miður mín yfir stöðu rannsóknarinnar eftir þáttinn í gær.

Nýi norski nágranninn var frekar pirrandi um helgina. Við skrifuðum heljarinnar kvörtunarbréf í gær. Svo kíki ég í okkar póstkassa í morgun og þar liggur þetta litla afsökunarbréf frá nágrannanum fullt yðrunar og loforðum um bætta hegðun. Maður auðvitað steinliggur fyrir svona löguðu. Vona bara að hann sé þá "på plads" bara núna. Leyfi mér að láta mig dreyma um góða nýja granna í stað óþolandi Grænlendingana sem eru fluttir. Það getur varla orðið verra.

   1 comments

Dagbjört
October 9, 2007   12:07 AM PDT
 
Bíddu Nossarar? Áttu þetta ekki að vera Svíar?

Æ hvað ég skil hann vel að fá kökk í hálsinn yfir sorglegum hlutum.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments