|
Nú styttist óðum í ferðina mína. Ég hlakka nú bara til enda einstakt tækifæri og margar spennandi heimsóknir á dagskrá. Spennandi líka að vita hvernig hópurinn verður. Hann er nefnilega töluvert öðruvísi samansettur en síðast. Núna eru svo margir kennarar sem fara frá Mið-Austurlanda rannsóknarstofnuninni í skólanum mínum. Sem mér finnst reyndar ákveðin viðurkenning á því hversu spennandi þessi ferð er. Í gærkvöldi fórum við í dýragarðinn. Það var svona kvöldopið. Þeir sem komu með útskorið grasker með sér fengu ókeypis inn. Við fórum nú bara inn á árskortunum okkar. Skerum bara út grasker þegar rétti tíminn nálgast. Það var voða notalegt að rölta gegnum garðinn svona í myrkrinu, mestmegnist upplýst með útikertum og graskerjum. Fórum með kakó og smá sætabrauð með okkur. Undir það síðasta fórum við svo og sáum þegar Pirenafiskunum var gefið að borða. Þrír fiskar voru settir niður til þeirra og þeir tættu þá í sig á engri stundu. Mér fannst þeir reyndar að þeir hefðu alveg mátt fá aðeins meira greyin. Meðan við biðum eftir þessu var HG alveg að líða út af í fanginu á pabba sínum. Mjög þreyttur. Hann var hins vegar ekkert þreyttur þegar við fórum gegnum búðina á leiðinni út. Svo sofnaði hann bara á leiðinni heim í vagninum. Ég dormaði svo yfir sjónvarpinu í svona tvo þrjá tíma. Undarlegt að fara ekki bara inn í rúm. Ég nefnilega lagði mig ekki um hádegið eins og mig langaði svo ótrúlega mikið til heldur fór ég í plokkun hjá Þóreyju og vax í fyrsta skiptið. Ég er reyndar almennt frekar óloðin á fótunum en núna alveg hárlaus og fín. Spurning um að rifja upp/æfa taktana með að plokka með spotta svona í tilefni Mið-Austurlandaferðar. Fór í dag í ofursnögga bæjarferð að redda því síðasta. Það er nefnilega "hensigtsmæssigt" að taka með sér sítt pils og boli með frekar síðum ermum í þessa ferð. Mér finnst reyndar galli á dagskránni sem við höfum fengið að það sé ekki dresscode með hverri heimsókn. Vona að við fáum samt að vita e-ð fyrir heimsóknirnar. Ég er nefnilega alveg til í að vera í gallabuxum ef það má. Hef ekki verið mikið fyrir það að ganga í síðum pilsum upp á síðkastið. Meðan ég skrapp í bæinn fóru þeir feðgar í hjólatúr. Eða réttara sagt HG að æfa sig að hjóla. Hann er víst orðinn voða duglegur og hjólar svona 20-30 metra sjálfur. Verst hvað við förum strjált út að prófa. Á sama tíma á morgun verð ég búin að hitta hópinn á leið að tékka inn. Ég hlakka reyndar ekki til að hanga á Kastrup fyrir flug. Eftir síðasta eitt og hálft árið er það skyndilega orðið ekki svo gaman að hanga á flugvöllum. En ég mun væntanlega stytta mér stundir við að fara í uppáhaldsbúðina mína. Þið munið væntanlega ekki taka eftir að ég hafi farið neitt þar sem blogghéið verður jafnlangt og undanfarið. |
| Steinunn Þóra October 14, 2007 02:53 AM PDT Góða ferð gæskan. Ég óska þér ofsalega góðrar skemmtunar og vona að þú eigir eftir að kynnast ofsalega mörgum nýjum og áhugaverðum siður. Þú skilar jafnvel kveðju frá mér til allra í Mið-austurlöndum!? Hlakka svo mikið til að fá að heyra alla ferðasöguna. | ||
| NameSalný October 14, 2007 12:19 PM PDT Góða ferð og góða skemmtun.. vona að þú eigir far með betra flugfélagi en ég um daginn og fáir þar af leiðandi betri tíma í fríhöfninni.. k.kv. Salný | ||
| hildigunnur October 14, 2007 01:19 PM PDT Góða ferð :) | ||
| Dagbjört October 14, 2007 01:34 PM PDT Forbrydelsen er að byrja hér í kvöld þannig að við getum kannski eitthvað rætt þessa þætti eftir nokkrar vikur. Góða ferð! | ||
| Úrsúla Manda October 14, 2007 11:06 PM PDT Góða ferð og góða skemmtun! Hlakka til að lesa ferðapistilinn :) | ||
| Hrönn October 15, 2007 11:10 AM PDT Já góða ferð, var ekki alveg búin að ná því hvenær þú ferð eða hvort þú sért þegar farin. Þú ert ótrúlega hetja, heyrist þú bara taka þessu með hinni mestu ró. Forbrydelsen var frábær, hlakka til að fylgjast með honum í vetur. | ||
| yourshop.cc December 4, 2008 08:58 AM PST http://www.watchesforsale.us | ||
| Leave a Comment: |