|
Meðan ég var úti var sko ekki setið auðum höndum hér heima. HG var búin að læra að hjóla þegar ég kom heim og vill helst fara allra sinna ferða á hjólinu sínu núna. Honum hefur meira að segja farið fram síðan ég kom og er farin að nota fótbremsuna soldið í stað þess að setja fæturna niður. Það tekur nú samt dágóðan tíma fyrir hann að hjóla t.d. í leikskólann, svona 20-30 mínútur, enda ná dekkin varla 12 tommu stærð. Svo er hann alveg uppgefinn greyið, sveittur og þreyttur í fótunum. En þetta vill hann. Held að við séum ekkert að kaupa stærra hjól alveg strax. Það er komið 90% vetrarveður hérna. Vantar bara snjóinn - sem ég sakna reyndar alls ekki. En það er kalt, rok og rigning. Og laufblöð út um allt í hrúgum. Greinilega e-r niðurskurður hjá bænum þetta árið. Þeir eru að minnsta kosti ekki jafn duglegir að hreinsa þau upp núna og í fyrra. Á miðvikudaginn koma mamma og pabbi í heimsókn í viku. Það verður notalegt að hafa þau. Vill svo skemmtilega til að það er akkurat ömmu- og afadagur í leikskólanum á föstudaginn. Ætli við höldum svo ekki svona smá upp á afmælið hans á sunnudaginn. Svo er Dagbjört líka væntanleg og svo ætlar Lisbeth að kíkja í heimsókn með krakkana daginn fyrir afmælið hans HG. |
| auður October 29, 2007 03:10 PM PDT hæ.. bara að kíkja við.. ótrúlega langt síðan ég hef gert það.. geri mest lítið annað en að vinna í húsinu okkar. Búin að blogga smá og setja inn myndir! EN bara smá.. en það er alltaf byrjunin. Knús til ykkar... kv auður | ||
| NameSalný October 29, 2007 09:04 PM PDT hmm.. spennt að sjá þessa þætti.. vona bara að þeir séu ekki á sama tíma og House sem er hinn þátturinn sem ég fylgist með í sjónvarpinu en sofna samt oftast yfir. Það verður gaman fyrir ykkur öll að fá ma, pa og da í heimsókn. Það er svo gott að vera í heimsókn hjá þér.. og nú sé ég bara fyrir mér allan góða matinn sem ég fékk hjá þér í sumar.. óforbetranlegt matargat.. Alla vegna hafið það gott, kannski verður afmælisgjöfin komin fyrir helgina.. mátulega í afmælið.. | ||
| hildigunnur October 29, 2007 11:49 PM PDT Oh, það er svo gaman þegar þau læra þetta, þau eru svo stolt og glöð :D Finnur á hins vegar svo stórt hjól að hann nær ekki niður með fæturna, en það er ekkert mál að taka hann með í hjólatúra, við getum alveg hjólað á þokkalegum hraða. | ||
| Dagbjört October 30, 2007 12:30 AM PDT Það er eitthvað svo krefjandi að vera sjónvarpsmanneskja þessa dagana. Og þessir Danir bara drita á okkur þáttum sem er bráðnauðsynlegt að horfa á. Aðeins að hægjast á hjartslættinum síðan ég horfði á Glæpinn í gær. | ||
| Steinunn Þóra October 30, 2007 01:06 PM PDT Mér sýnist við þurfa smá útsjónarsemi til að ná bæði Klovn og House. En við sem erum með digital Ísland getum náttúrulega bara horft á Klovn með klukkustundar seinkun. -Þetta +sjónvarp er uppáhalds uppfinningin mín í langan tíma. Ég hef sem sagt aldrei haft mig í að horfa á dvd diskinn sem þú gafst mér. Danirnir bara tala of hratt, meira að segja fyrir mig. Vona að íslenskur texti hjálpi. | ||
| Maja November 5, 2007 05:58 PM PST Ég var að googla klovn og lenti hér inn :) Takk fyrir að auglýsa þættina og endilega fylgstu með þeim á rúv :) | ||
| yourshop.cc December 4, 2008 09:47 AM PST http://www.watchesforsale.us | ||
| Leave a Comment: |