|
Erum búin að vera ein í koti síðan á þriðjudaginn. Það tekur svo enda á morgun þegar Dagbjört kemur. Það var óskaplega notalegt að hafa mömmu og pabba. Þau dekra alveg við okkur og við erum frekar lélegir gestgjafar þegar þau eru í heimsókn. Svo var líka skólahelgi hjá mér þannig að þau voru í því að passa og svoleiðis. Við héldum pínkulítið afmæli síðasta sunnudag fyrst þau voru og buðum Þóreyju og co í mat. Næsta mánudag verður það svo leikskólinn. Það verður fróðlegt að sjá hvernig það tekst til. Þau verða hér milli 10 og 1, leika og fá e-ð gott að borða. Seinni partinn förum við svo með afmælisbarnið í Build A Bear þar sem hann fær að rasa aðeins út. Það mun eflaust stórsjá á buddunni eftir þá heimsókn. Það hefur verið fjárfest í kuldaskóm á barnið. Fjárfest já, þeir kostuðu 650 DKK sem mér finnst ansi mikið fyrir skótau á tæplega fimm ára. Og þeir eru númer 30! Ég nota skó nr. 36-37. Ekki svo mikill munur miðað við að ég er 25 árum eldri. Ég kíkti á síðuna hans Hlyns í gær og ég verð að segja að ég er bara ánægð með lagið hans. Fyrsta lagið lofar allavega góðu. Ég fékk gæsahúð - ekki aulahroll! Endilega kíkið á hann. Og ekki gleyma að horfa á Klovn í kvöld kl. hálf tíu. Vorkenni ykkur sko ekkert, með texta og allt. Hefði alveg verið til í að sjá þættina textaða þegar við vorum frekar ný hérna og áttum frekar erfitt með að greina orðaskil (snilldin flæddi nú samt í gegn). Það hefur nú lagast heilmikið. Sáum það fyrir ca mánuði þegar var viðtal við Bjørn Lomborg og við skildum allt sem fram fór. Okkur hefur sem sagt e-ð farið fram. Meira segja það að tala í síma er ekki eins slæmt eins og það var - en samt það versta. |
| Úrsúla Manda November 8, 2007 09:09 PM PST Svona þér að segja þá hef ég aldrei horft á Klovn, ekki frekar en alla hina dönsku þættina sem þú talar um!! :) Jú Vild med dansk :) | ||
| Jóhanna November 8, 2007 09:17 PM PST Hvað ertu að segja!? Núna eru dönsku þættirnir eiginlega það eina sem ég horfi á. Enda erum við frekar sjónvarpsstöðvafátæk. | ||
| Gudrun J November 9, 2007 09:10 AM PST hæhæ! Velkomin heim úr ferðalaginu og innilega til hamingju með drenginn!! Þú mátt skila afmæliskveðju frá okkur, þó pínu seint sé :-/ Já barnakuldaskór kosta ansi mikið, það er sko alveg hægt að fá þá á 7000 kr á 1 1/2 árs.... Biðjum kærlega að heilsa í kotið! kv gudrun og co. | ||
| Jóhanna November 9, 2007 05:52 PM PST Takk fyrir:) Þú ert nú bara alveg tímanlega í því þar sem stóri dagurinn er á mánudaginn;) Svo bíða aðdáendur spenntir eftir nýjustu fréttum af flotta stráknum og húsbyggingu. | ||
| Ninos November 14, 2007 12:01 PM PST Hæ Kæra Jóhanna. Vildi bara óska Helga Gný innilega til hamingju með afmælið! Bestu kveðjur frá okkur öllum. | ||
| Leave a Comment: |