|
Afmælið síðasta mánudag heppnaðist vel og allir átu á sig gat. Valdimar rúllaði þessu upp og mæltist til þess að við Dagbjört héldum okkur bara inni í stofu sem selskabsdömur. Það fór allt vel fram og varla mælanlegt væl þó þrettán börn væru að leik. HG fékk ógrynni af afmælisgjöfum (ein sameiginleg þó frá leikskóladeildinni), margar nýjar bækur (sem bjargar geðheilsu okkar foreldranna) og alls konar dót. Eins gott að hann fær aðeins stærra herbergi bráðum. "..." ritskoðað. Tók út um Forbrydelsen. Næst síðasti þátturinn í kvöld. Best að ræða bara ekkert þennan þátt. Það hefur verið 8-9 stiga hiti undanfarið og milt veður. Það liggur við að það sé heitt miðað við hvernig veðrið var um daginn. Valdimar er búin að vinna mikið þessa helgina. Og verður að vinna mikið í desember. Hann rétt fær frí meðan við erum að flytja. Það verður því kærkomið jólafrí á Íslandi. Bara mánuður í það. 7. desember ætlum við að flytja í nýju íbúðina. Þórey og Atli eru boðin og búin en það eru ennþá laus pláss fyrir áhugasama til að hjálpa. Eins og kom fram hjá Valdimari þá er frí gisting og fæði í boði og hver vill ekki spóka sig í þriðju stærstu borg Danaveldis í desember og njóta stemmningarinnar, altså? |
| Dagbjört November 19, 2007 12:16 AM PST Það er einmitt að kólna hér núna, mætti halda að kuldinn elti mig. Nú eða að það væri vetur. Já rosa gott að hafa mig sem selskabsdömu, kinkaði kolli og brosti á réttum tímapunktum kýs ég að halda. Það er vel þegið að kjafta ekki frá Glæpnum :) | ||
| Name Salný November 21, 2007 11:50 AM PST Vildi bara óska að ég kæmist til að hjálpa.. myndi þá líklega kíkja við í dýragarðinum í leiðinni.. en kannski við mæðgur skellum okkur í aðra odense ferð í vor.. aldrei að vita.. verst að þá gerum við ekkert gagn í flutningunum en þið getið þá kannski notað okkur í eitthvað annað.. | ||
| Jóhanna November 21, 2007 12:50 PM PST Þið eruð sko ávallt velkomnar. Og eflaust gætum við fundið e-r verkefni handa ykkur;) | ||
| Úrsúla Manda November 21, 2007 01:32 PM PST Til hamingju með einkasoninn :) Það verður aldeilis fínt fyrir ykkur að flytja, verst að ég er akkúrat í prófum þarna. | ||
| Helga Dröfn November 24, 2007 11:49 AM PST Hæ. Upphaflegt plan stendur, ég ætla að vinna milli jóla og nýárs :) Gangi ykkur vel að flytja - ég geri mitt besta í að losa ykkur við stífa strengi og þreytu í vöðvunum hehehe Hey hver er þessi Hlynur Ben. Þetta lag er þrusufínt og trommarinn var með mér í Ármúlanum á fysta ári minnir mig. Svo fór hann heim aftur. Þoldi ekki Höfuðborgarstressið. Eða saknaði mömmu - man ekki hvað hrjáði piltinn :) Hafið það gott og bestu kveðjur til hinna fjölskyldumeðlimanna | ||
| Jóhanna November 25, 2007 09:17 PM PST mmm ég hlakka til að sjá þig. Það verður dásamlegt að koma í nuddið. Hlynur er að austan eins og svo margt gott fólk;) | ||
| Name November 27, 2007 05:18 PM PST Var ég nokkuð búin að óska ykkur til hamingju með nýju íbúðina, geri það amk hér með. Er mjög ánægð fyrir ykkar hönd. kveðja úr skólastressinu | ||
| Jóhanna November 28, 2007 11:38 AM PST Takk fyrir kæra "name". | ||
| Steinunn Þóra November 28, 2007 11:41 AM PST Ertu nokkuð búin að pakka tölvunni? | ||
| Jóhanna November 28, 2007 02:22 PM PST neeei ég er ekki búin að pakka tölvunni. Ég er mjög blogglöt. Það er ekkert að nýtt að frétta. Aldrei að vita nema andinn komi yfir í nýjum mánuði. En ég fylgist mjög vel með ykkur öllum:) | ||
| Ninos December 4, 2007 06:50 PM PST Vissi ekki að –¡ldimar v沩 með ³ðµ¡ Flottar myndir. Hlakka svo til að ³ªá ¹kkur um j󬩮. Vonandi gefst ykkur tí© til að «kja á ¯kkur. Þ¡ð ¥² lið©° heilt á² sí°¡n vi𠳡umst sí°¡st! | ||
| Jóhanna December 4, 2007 11:15 PM PST Það verður sko pottþétt tími til að kíkja á ykkur Nína! Hlakka svo til að sjá ykkur öll. | ||
| yourshop.cc December 4, 2008 08:43 AM PST http://www.watchesforsale.us | ||
| Leave a Comment: |