|
Við sem sagt borgum leigu fyrir nýju íbúðina frá 1. desember. Í morgun hringdi svo einn frá selskabinu og sagði að íbúðin væri nú ekki alveg tilbúin til að flytja inn. Þeir hefðu kíkt á hana í gær og séð að það þyrfti að pússa gólfin og gera hreint í eldhúsinu og baðinu. Ég var nú ekki par hrifin af fréttunum. Er búin að vera frekar reið og leið yfir þessu í dag. Þetta þýðir að við getum ekki flutt á föstudaginn heldur þurfum að bíða fram á laugardag með það. Vonandi ekki lengur því þá brjálast ég. Ekki bara það heldur hefur ekkert verið gert hreint í íbúðinni yfir höfuð þannig að við þurfum að gera það líka og svo þurfum við að mála a.m.k. tvö herbergi sem líta alls ekki vel út. Gólfið á sem sagt að verða tilbúið seint á föstudag en hreingerningarkonan kemur ekki fyrr en á-, fyrr en á- mánudaginn!!! Við sem ætluðum að nýta laugardag og sunnudag í að gera hreint hér í þessari íbúð. En í staðinn þá þarf ég að rolast í því ein í næstu viku því Valdimar er að vinna geðveikt mikið núna. Ég er búin að vera frekar dugleg að halda í mér grátinum í dag. Það hjálpar alltaf að grenja soldið en það þýðir nú lítið að mæta með grátbólgin augun í leikskóla eða búðir. Og það sem mér finnst leiðinlegast er að við eigum eftir að þurfa að búa í pappakössum og drasli allt allt of lengi. Örugglega út janúar ef ég á að geta lesið e-ð fyrir próf. Og það sem fylgir er að við getum ekki skreytt neitt skemmtilega fyrir jólin eða keypt jólatré og notið þess. Ömurlegt! En ekkert við þessu að gera. Treysti bara á huggulegar jólaskreytingar hjá öllum sem ég/við ætlum að heimsækja um jólin;) Þetta er t.d. e-ð sem ég ætla ekki að missa af! Ég fór í gær til kínversks læknis. Ég hélt að ég væri að fara í nálastungu en engri nál var stungið í mig. Finnst ég hafa verið soldið svikin. Þetta var allt hið undarlegasta. Mætti og svo kom að því að mér var stillt inn á stofu við borð. Svo kom læknirinn ásamt öðrum gestalækni (sem var svo lík fyrrum nágranna mínum hér fyrir ofan að ég fékk mig ekki í fyrstu atrennu til að líka við hana). Þær tóku báðar púlsinn nokkrum sinnum og skoðuðu tunguna mína. Kinkuðu svo kolli og sögðu mhm og töluðu kínversku og læknirinn skrifaði e-ð niður. Jæja þá var nú komið að meðferðinni. Þá var ég látin setjast á koll við endann á svona legubekk með hendurnar upp á. Fór úr að ofan og e-m hitalampa var beint að bakinu á mér. Þarna átti ég að sitja í 30-40 mínútur (mér heyrðist hún samt segja 3-4 mínútur). Ég var nú komin með frekar mikinn pirring í fæturna á að sitja þarna og hálfgerðann náladofa í hendurnar. Svo kom hún nú loksins og ég var soldið spennt að fá nálarnar í mig. Nei nei þá tekur hún upp rosalega sterka olíu og ber á bakið á mér og svo byrjar hún að nudda mig fast með slípuðu nautshorni. Bakið og hálsinn á mér lítur út eins og Valdimar hafi gengið í skrokk á mér. Þetta eru ekki venjulegir marblettir heldur er ég e-n veginn rauð en ekkert aum samt. Svo var þetta bara búið og hún sagði mér að ég ætti að fá mér e-ð heitt að drekka áður en ég færi. Það ítrekaði svo ritarinn "það er alveg helmingurinn af meðferðinni". Þetta greiddi ég svo 600 danskar krónur fyrir. Mér líður ekkert öðruvísi. Enda á ég að koma aftur næsta mánudag. Þangað mæti ég auðvitað með glöðu geði. Síðasta helgi var skólahelgi. Síðasta kennsluhelgin. Ég fer svo í eitt próf í janúar (vonandi) og svo eru það bara verkefni svo langt sem augað eygir. Er nefnilega ekki búin að vera dugleg að læra í tvo mánuði! |
| Steinunn Þóra December 4, 2007 08:40 PM PST Æ hvað þetta eru leiðinlegar fréttir. Getið þið í það minnsta ekki farið fram á einhvern afslátt vegna óhagræðisins sem af þessu hlýst? Vona bara að ykkur takist að halda ró ykkar - svona að mestu allavega. Við á Mánagötunni munum hugsa fallega til ykkar næstu daga og vona að það geri ástandið allavega ekki verra. Annars er ég farin að hlakka svo mikið til þegar þið komið og er farin að plana allskonar kaffihúsaferðir og sammenkomst í huganum - og er þess náttúrulega full viss að þið hafið allan tíman í heiminum til að leika við okkur og þurfið ekkert að sinna öðrum vinum eða ættingjum. | ||
| Steinunn Þóra December 4, 2007 08:42 PM PST Legg ekki í að hafa skoðun á hrossalækningunum - en já, þetta hljóma svolítið sem hrossalækningar i mín eyru. En ég vona auðvitað að þú verðir hress sem aldrei fyrr eftir aðfarirnar. | ||
| Jóhanna December 4, 2007 11:14 PM PST Mér finnst allt í lagi að gefa hrossalækningunum séns þegar þetta hefðbundna gerir ekkert fyrir mann. Í þessu tilfelli er þetta nú aðallega e-r undarleg upplifun - sem ég vil ekki missa af:) | ||
| Gudrun J December 6, 2007 09:33 AM PST Æ Æ, en leiðinlegt að heyra þetta með íbúðina...! Þið látið bara dekra við ykkur á Íslandi í staðinn! Það var meira að segja jólalegt í morgun, þykkur snjór yfir öllu :) Ég er sammála Steinunni, það væru nú gaman fyrir okkur "sveitafólkið" að taka kannski púlsinn á jólastemningunni í 101 með ykkur fyrir jól ;) | ||
| Name December 7, 2007 11:00 AM PST sárvorkenni ykkur að vera svona heimilislaus fyrir jólin og að eiga bara pappakassa til að skreyta með. en komið þið samt heim yfirhátíðirnar? | ||
| Tinna December 7, 2007 11:01 AM PST spyr ég sem sagt | ||
| yourshop.cc December 4, 2008 08:00 AM PST http://www.watchesforsale.us | ||
| Leave a Comment: |