frujohanna
Flutt
      <description>Þar sem þessi síða hefur ekki verið með neitt nema vesen undanfarna daga er ég flutt hingað http://frujohanna.wordpress.com</description>
Jamm og jæja
      <description>Jæja er ekki best að koma sér í gang aftur eftir sníkjublogg hér og þar undanfarnar vikur. Eða þannig. Veit ekki hversu vel tengd við verðum í næstu viku miðað við fréttir dagsins.
Við sem sagt borgum leigu fyrir nýju íbúðina frá 1. desember. Í morgun hringdi svo einn frá selskabinu og sagði að íbúðin væri nú ekki alveg tilbúin til að flytja inn. Þeir hefðu kíkt á hana í gær og séð að það þyrfti að pússa gólfin og gera hreint í eldhúsinu og baðinu. Ég var nú ekki par hrifin af fréttunum. Er búin að vera frekar reið og leið yfir þessu í dag. Þetta þýðir að við getum ekki flutt á föstudaginn... (more)</description>
Faldar síður
      <description>Það eru faldar hliðarsíður á blogginu hans Valdimars. Þar er m.a. að finna afmælismyndir fyrir áhugasama.
Afmælið síðasta mánudag heppnaðist vel og allir átu á sig gat. Valdimar rúllaði þessu upp og mæltist til þess að við Dagbjört héldum okkur bara inni í stofu sem selskabsdömur. Það fór allt vel fram og varla mælanlegt væl þó þrettán börn væru að leik. HG fékk ógrynni af afmælisgjöfum (ein sameiginleg þó frá leikskóladeildinni), margar nýjar bækur (sem bjargar geðheilsu okkar foreldranna) og alls konar dót. Eins gott að hann fær aðeins stærra herbergi bráðum.
"..." ritskoðað. Tók út um... (more)</description>
Smá...
      <description>Nennið er í lágmarki. Smá öppdeit þó.
Erum búin að vera ein í koti síðan á þriðjudaginn. Það tekur svo enda á morgun þegar Dagbjört kemur. Það var óskaplega notalegt að hafa mömmu og pabba. Þau dekra alveg við okkur og við erum frekar lélegir gestgjafar þegar þau eru í heimsókn. Svo var líka skólahelgi hjá mér þannig að þau voru í því að passa og svoleiðis.
Við héldum pínkulítið afmæli síðasta sunnudag fyrst þau voru og buðum Þóreyju og co í mat. Næsta mánudag verður það svo leikskólinn. Það verður fróðlegt að sjá hvernig það tekst til. Þau verða hér milli 10 og 1, leika og fá e-ð gott að... (more)</description>
Trúður
      <description>Það er gott að fólk tekur að sér svona þjóðþrifaverkefni. Mæli með að fólk setjist við sjónvarpið næsta fimmtudag og horfi á Trúð.
Meðan ég var úti var sko ekki setið auðum höndum hér heima. HG var búin að læra að hjóla þegar ég kom heim og vill helst fara allra sinna ferða á hjólinu sínu núna. Honum hefur meira að segja farið fram síðan ég kom og er farin að nota fótbremsuna soldið í stað þess að setja fæturna niður. Það tekur nú samt dágóðan tíma fyrir hann að hjóla t.d. í leikskólann, svona 20-30 mínútur, enda ná dekkin varla 12 tommu stærð. Svo er hann alveg uppgefinn greyið, sveittur og... (more)</description>
Komin
    Ég kom heim um hádegi á mánudaginn eftir langt ferðalag alla nóttina.   Lengstan tíma áttum við í Damaskus þar sem við fórum í nokkrar mismunandi heimsóknir, borðuðum á yndælis veitingastöðum, (voða mikið masi eða hvað það nú heitir svona alls konar réttir) og gegnum töluvert um gamla bæinn (sem er á varðveisluskrá UNESCO) og kristna hverfið.  Það var mikil upplifun að ganga um Damaskus. Þessi borg hefur ekki mikla túristareynslu þannig að maður getur gengið um svo til óáreittur (miðað við aðra staði) og mér fannst ég mjög örugg og var ekki banginn að ganga ein um. Ég veit ekki hvort ég... (more)</description>
Ferðin að bresta á
      <description>Nú styttist óðum í ferðina mína. Ég hlakka nú bara til enda einstakt tækifæri og margar spennandi heimsóknir á dagskrá. Spennandi líka að vita hvernig hópurinn verður. Hann er nefnilega töluvert öðruvísi samansettur en síðast. Núna eru svo margir kennarar sem fara frá Mið-Austurlanda rannsóknarstofnuninni í skólanum mínum. Sem mér finnst reyndar ákveðin viðurkenning á því hversu spennandi þessi ferð er.
Í gærkvöldi fórum við í dýragarðinn. Það var svona kvöldopið. Þeir sem komu með útskorið grasker með sér fengu ókeypis inn. Við fórum nú bara inn á árskortunum okkar. Skerum bara út grasker... (more)</description>
musik og prat
      <description>Eins og vanalega er ekki mikið að frétta af þessum vígstöðvum. Valdimar er svo duglegur að ég nenni þessu varla. Þeir feðgar fóru í klippingu í dag til Tyrkjans í gamla bænum. Þeir eru voða fínir. Valdimar fékk e-ð nudd sem honum þótti e-ð of mikið af því góða en hann ætlar samt aftur því þetta er svo flinkur rakari. HG fékk svona mini hanakambsklippingu. Hann er alltaf svo glaður og montin þegar hann kemur úr klippingunni með greiðslu og allt. Svo mættu þeir heim með blómvönd handa mér og allt. Ægilega fínn. Langt síðan ég hef fengið blóm svona óforvarendis. En það er nú alltaf jafn... (more)</description>
Afrekaskrá
      <description>Ég er orðin þrítug og hef komist gegnum öll þessi ár án þess að fá gat á hausinn eða hefta í fingurinn á mér. Á innan við ári hefur HG núna afrekað að fá tvö göt á hausinn og svo nú í dag að hefta í fingurinn á sér. Honum brá alveg hrikalega og reif heftið sjálfur úr (sem betur fer, ekki hefði ég gert það betur). Ég hef bara ekki heyrt hann gráta/öskra svona hrikalega. Mér skilst sem sagt að það sé vont að fá hefti í fingurinn. Paranojaða ég hringdi auðvitað í læknavaktina til að spyrja hvort e-ð væri gert í svona tilvikum (var þá með stífkrampasprautu svona í "baghovedet") en nei, bara... (more)</description>
Brúðhjón dagsins
      <description>eru auðvitað Steinunn og Stefán. Innilega til hamingju með daginn!!! Ég vildi svooo óska að ég hefði getað verið með. Núna stendur væntanlega hin fínasta veisla yfir í Elliðaárdalnum þar sem allir skemmta sér glimrandi vel. Treysti svo á góðar frásagnir og myndir helst sem fyrst og svo frá fyrstu hendi um jólin.
Mér hins vegar hundleiðist hér heima. Hitinn er nú e-ð að lækka en samt ekki nóg og mér er drulluillt í hálsinum (ytra sem innra) plús allskyns viðbót. Ég sé á netinu að það hefa verið sérstaklega áhugaverðir fyrirlestrar og umræður í dag í skólanum. En ég fæ allavega lánaðar glósur... (more)</description>